Duttu um leið á hausinn.

Þetta er áhugavert test fyrir væntanlega ríkisstjórn. Ætli Framsókn heimti að gengið verði í hörku útaf Icesafe? Steingrímur var allavega mjög á skotskónum og gagnrýndi hart þegar fráfarandi ríkisstjórn sagði OK, þegar ESB í allri sinni mynd (já, meira að segja Danir og Svíar) fóru með fullum þunga og gerðu ráðamönnum það skýrt til athugunar, að ef ríkissjóðurinn íslenski myndi ekki ábyrgjast, þá myndi ESB ekki hætta á að það myndi búa til fordæmi og holskefla af sambærilegum málum myndi fylgja í kjölfarið. Ísland myndi borga, eða, Ísland myndi fá það borgað - þannig að ESB myndi hafa einangrað okkur, hugsanlega beitt okkur nokkurs konar efnahagsþvingunum. Allavega má gera ráð fyrir því, m.v. viðbrögð Breta við fjármagnsflutningum sem áttu sér stað korteri fyrir hrun.

Þá er að sjá hvort við náum ekki endanlega að komast tilbaka á steinöld, þegar VG og Framsókn, já og Samfylkingin eru búin að brenna brýrnar okkur að baki.

Fólk virðist alltaf gelyma því að það eru líka eignir að baki þessara skulda, ekki bara skuldir. Hentugt er fyrir ríkissjóð að hinkra með sölu þessara eigna, vernda þær, þannig að þær verði söluhæf vara innan fárra ára. Enda er ekki hjá því að líta að í heiminum í dag er almennt hallæri og eignaupptaka í formi verðfalls á eignum og verðhækkana vegna innflutnings og framleiðslu.


mbl.is Opnast Icesave-málið að nýju?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Framsókn í frosti og Frjálslyndir farnir að veiða.

Þetta skýtur nú ansi skökku við. Í upphafi viðræðna í byrjun þessarar viku, þá héldu formenn þessara flokka Samfylkingu og VG því fram að þetta tæki snarta stund, þar sem flokkarnir lægju svo nálægt hvor öðrum. Sýnist sem svo að þetta ætli að vera erfitt fyrir VG að kyngja ESB bitanum, sem kom svona með í desert.

Tek undir með sem hafa verið að blogga og haft uppi áhyggjur um að þetta yrði svona popularisma-stjórn. Þ.e. allra mikilvægustu, og kannski allra nauðsynlegustu (og pottþétt erfiðustu og óvinsælustu) aðgerðirnar munu sitja á hakanum fram yfir kosningar í vor. Hví þetta er svo erfitt að semja sig áfram um næstu 2-3 mánuði????? Jah, það er von að maður spyrji. Eru verkefnin ekki ærin? Sagðist Samfylkingin og Vinstri Grænir vita NÁKVÆMLEGA hvað þeir ætluðu að gera?? Það þyrfti bara tvennt, skúra í Seðlabankanum og frysta Sjálfstæðisflokkinn.

Framsóknarflokkurinn hlýtur að vera frústreraður. Sérlega í ljósi yfirlýsinga þingmanna hans síðustu tvo daga, og ekki síst nýs formanns Framsóknar um að eitt að skilyrðum þeirra fyrir stuðningi við minnihlutastjórn yrði að þeir kæmu að einhverju leiti að borðinu í upphafi til að hafa pínu um það að segja hvað þeir væru að styðja. Ekkert hefur orðið að þeim fyrirheitum S og VG.

Frjálslyndir hljóta bara að klóra sig í hausnum, því eftir þvi sem ég best veit (leiðréttist ef ég hef það ekki rétt) þá þarf Frjálslynda líka til að verja minnihlutastjórn. þeir hljóta bara að horfa á skýin og dorga niður á bryggju eftir kola.

Mér er það mikið áhyggjuefni að hérna sé ekki að leysast úr stjórnarkreppunni sem virðist ríkja á Alþingi. Hvar eru allir Alþingismennirnir okkar? Hvernig stendur á því að þeir taka sig ekki saman og mynda sáttmála, allavega fram að kosningum, þannig að klakkinn fari ekki endanlega til helvítis.


mbl.is Fundað um stjórnarmyndun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Móðir allra mótmæla!!!

 betty-boop-cell

Koma svo fólk. Er þetta ekki kjörið tækifæri? Nú eru þúsundir búnir að sitja um Alþingi vegna smákrimma í útlöndum sem settu allt á hausinn. Er fólk búið að gleyma Bretunum??? KOMMON! Þetta er NATO!!! Nú ættu þúsundir að mótmæla við fundarstaði NATO. Ok, það er allavega vitað hvar liðið er. Hvers vegna hefur ekki heyrst píp frá yfirstjórn NATO um að Bretar stinga slíkum lögum á íslenskt fyrirtæki. Bíddu, erum við ekki líka í NATO? Erum við þá orðin óvinaþjóð hinna NATO ríkjanna ef Bretar telja ÓGN steðja af okkur, svo mikla að þeir beita MJÖG umdeildum lögum á íslenskt fyrirtæki???

Eða, eru íslensk mótmæli svona púkó að við sýnum þau ekki virtum NATO'ingum??


mbl.is Sex voru handteknir
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

blablablablabla.....

Bíddu hvað er málið? Þessi stjórn á að sitja í hvað, febrúar, mars og apríl (ef hún er heppin). Hvað er svona erfitt? Afhverju er ekki málalok kominn? Kommon gæs, drífa þetta af!!!

Er þetta ekki frekar einfalt?

1.  Fá skuldastöðu ríkissjóðs - til að ákveða næstu aðgerðir.

2.  Fá skuldbindingastöðu fjármálafyrirtækja erlendis sem hugsanlega gætu lent á ríkinu eða sem í það minnsta þyrfti að semja um.

(ég allavega fyrir mína parta ætlast til þess að ég fái um það að segja hvað mínir skattpeningar fara í að borga og hversu mikið og FYRIR HVERJA)

3.  Setja peninga inní íslenska banka og reka alla millistjórnendur og hærra setta, þar þarf líka að hreinsa til. Þetta myndi þá kannski þýða að banarnir gætu farið að funkera.

4.  Aðgerðir fyrir fjölskyldur, t.d. frysta skuldir er snúa að því að fólk geti lifað næstu 12 mánuði þokkalega af.

5.  Aðgerðir fyrir fyrirtækin, t.d. að lánalínur til þeirra komist í gang þannig að mörg þeirra þurfi ekki að gefa upp öndina að óþörfu.

6.  Hafa áhættulán með litlum tryggingum til að freista þess að menn geti komið sér útúr mestu þrengingunum, á sérkjörum frá ríkinu og með rúmum endurgreiðsluskilmálum. Er það ekki betra en allir fari á hausinn?

7.  Fólk sem mun taka við atvinnuleysisbótum geti kosið að fara í nám, en án skilyrða LÍN. Er ekki betra að borga fólki fyrir að mennta sig í stað þess að það sitji heima á rassgatinu og geri ekki neitt en að horfa á imbann í von um að ástandið bætist.

8. Koma þeim til landsins sem bera megin ábyrgð á hruni okkar efnahagskerfis, þar sem þeir verða látnir sæta ábyrgð og sæti rannsókn. Hvort sem það hefur í för með sér að þeir verði fangelsaðir eða opinberlega hýddir fyrir framan Alþingishúsið.

allt annað getur beðið kosninga, ekki satt?


mbl.is Nær Evrópu með Vinstri grænum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Móðir allra ríkisstjórna (part 1)

Funny20-20Mom201

Það var mjög fyndið að allur áróður í Baugsmiðlum gengur útá að það sé sjálfgefið að Jóhanna sé næsti forsætisráðherra. Allavega veit ég núna miklu meira um þessa konu heldur en ég kæri mig um að vita. En, liggur það þá ekki ljóst fyrir að Samfylkingin er búin að raka til sín öllum hinsegin atkvæðum líka? Sagt er að Jóhanna verði fyrsti kvennmaðurinn í sögu lýðveldisins að hampa forsætisráðherrastól, tala nú ekki um að það hlýtur að vera pottþétt þar sem hún er samkynhneigð líka - en, hvaða máli skiptir það? Af hverju skiptir það máli hvaða kynhneigð hún hallast til?? Gerir það hana hæfari eða óhæfari? Hvurslags bull. Hún er kona nr. 1, 2 og 3. Hvað hún gamnar sér utan þings skiptir ekki megin máli hér.

Sérstaklega er þessi áróður fyrir henni athyglisverður í ljósi þess að engin ríkisstjórn er við völd hér í dag, heldur núverandi (fráfarandi) starfsstjórn. Athyglisvert að fréttasvið Stöð2 skyldi vera búið að kokka upp öllum hennar ferli og í talpípustólum um að hún sé orðinn forsætisráðherra, og það á innan við sólarhring frá stjórnarslitum.

En dæmandi af listanum sem nefndur er í fréttinni þá lítur út að það sé gott að vera vinur vina sinna.


mbl.is Býst við stjórn á laugardag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Gummi kominn heim.

Jæja, gamli skólafélaginn minn bara sestur í framsóknina eins og forfeðraveldið. Var ekki einhver að tala um að tiltekt hefði átt sér stað í Framsóknarflokknum?? Allavega virðist Gummi vera hættur að vera í fýlu úti pabba gamla og kominn á sinn stað sem honum var ætlað til að endurvekja "gömlu gildin" í framsókn. En, er það ekki einmitt það sem fólk var búið að gefast upp á? Hefur, og mun, framsókn ekki alltaf standa fyrir vinatryggð og sérvinavæðingu?

En, það er gott að hann Finnur fyrir svona miklum meðbyr í gustinum á klakanum.

Hefur svo einhver gefið sér tíma og skoðað hver er pabbi Sigmundar Daviðs?? Nei, hélt ekki. Hvernig væri að kíkja á það og tala svo við mig. Allavega eru ríkisspenarnir fullþandir þar.

Það er allavega gott að vita að það er í hlutverki "Nýju Framsóknar" að hugsa um forfeðrahaginn, eins og ávallt, ekki satt:)

Pabbarnir sjá um sína þegar mest við lætur.


mbl.is Guðmundur: Stefnir á fyrsta sætið í NV-kjördæmi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

...og svo skammastu þín svo...

 sig_hrei

 Núna er svo komið að þegar ég sé nöfn þessara manna og annarra úti-rásar-auðna-manna, poppar alltaf uppí hausnum á mér sama lagið..... með Ladda:   ... þegar ég var smár...... og svo skammastu þín svo....

(jú.... líka þegar ég sé Hann-nes - Jón og Jó-hann-ess)


mbl.is Milljarðalán skömmu fyrir hrun
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Skrattinn loksins búinn að hitta ömmu sína.

Já, maður getur ekki annað en brosað útí eitt, og svo hitt, og svo bæði.

Mikið gasalega ætlar þetta að verða vandræðalegt fyrir Ögmund. Vinstri grænir rétt byrjaðir á að ræða við hugsanlegann samstarfsríkisstjórnakredduflokkinn, og vitleysan strax byrjuð. Maður sem búinn er að helga sig verkalýðsbaráttu undangengin - guð má vita hvað - mörg ár.

Skemmtileg tilviljun að Dabbi kallinn er orðinn "skjólstæðingur" Ögmundar. Þá er spurning, gengur Ögmundur á grundvallar-hugsjónarmið sín með því að ráðast svona með beinni aðgerð að einum starfsmanni í stjórnsýslu, þ.e. ríkisstarfsmanni. Er þetta virkilega orðið svo slæmt að verkalýðsbaráttan fleygir útum gluggan áratuga baráttumálum - til að fá svalað sínum sérhagsmunum? Jah, veit að það eru fleiri en Jón Sigurðsson (forseti) sem eru orðnir ókyrrir í gröfum sínum.

Hefði verið mjög rausnalegt af Ögmundi að upplýsa almenning um að það er mál sem vanda þarf til að losa út ríkisstarfsmann á stjórnunarstigi Davíðs. Þetta hefði verið gott innlegg í umræðuna, og líka með það að Vinstri grænir eins og aðrir flokkar hér á landi sem og stjórnmálamenn, hafa ekki græna glóru hvernig á að takast á við þau vandamál sem fyrir okkur liggja.

Ég ámæli Ögmund, þrátt fyrir að ég hef alltaf borið ómælda virðingu fyrir honum, fyrir að þjóðnýta sér stöðu landsins og leggja af þjóðstjórn til að pota og ota sínum tota. ÖGMUNDUR: Hvar eru 5 milljarðarni sem lífeyrissjóðurinn sem þú stýrðir "týndu"?? Já, hvar? Þá var ekkert hrun eða spreð í gangi. Er búið að finna þessa peninga?


mbl.is Davíð undir væng Ögmundar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sigurður greinist með lekanda!

Það er engu líkara en að vel smurður lygavefur sé í vændum og mikill hvítþvottaáróður að ryðjast fram frá Sigurði og félögum, enda blessuðu mennirnir búnir að hafa um 4 mánuði til að kokka sínum bókum saman, eyða gögnum, tryggja baklandið og nóga peninga til að leika sér á jómfrúunum Bresku.

Mér finnst þetta allavega alveg ótrúlegur lekandi af upplýsingum í ljósi þess að Sigurður er búinn að segja að 3-4 mismunandi hlutir hafi fellt bankakerfið, jú, og svo þetta. Er þetta ekki líka alveg dæmalaus tímasetning að þegar í loftinu liggur frumvarp til laga um að kyrrsetja eigur íslenskra auðmanna, þá bara POPPSALAPOPPS, dúkkar upp ástarbréf til ættingja og vina frá Sigurði Einars. Sorry, mér er svo ofboðið að orð í óbrenglaðri mynd komast ekki á þann stað í huga mínum gagnvart þessum aðilum.

Sigurður, bara bein spurning hérna, ertu virkilega svo vitlaus að halda það að fólk sjái ekki í gegnum þetta hjá þér? Er þetta ekki afar hentugur tími til að "leka" slíkum upplýsingum, "einkabréfi", eða hvað þú vilt kalla þetta. Þú veist það vel og ég að bréfið er eingöngu til þess fallið að veita villandi upplýsingar og slá ryki í augu fólks.
Fyrir utan það, ef þú gerðir ekkert af þér,  hvers vegna ertu þá ekki hér á klakanum að taka til hendinni og hjálpa til með upplýsingagjöf eða bara þrífa skítinn eins og við hin? Er eitthvað fleira sem þú hefur uppí erminni til okkar "vina og vandamannanna" hér á klakanum sem þú vilt deila með okkur?


mbl.is Atlaga felldi íslenska kerfið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Merkilega ómerkilega merkilegur hjónaskilnaður.

Hefur Samfylkingin ekki alltaf verið betri PR en Sjálfstæðismenn? og reyndar allir hinir flokkarnir líka? Þessi PR-vél Ingibjargar er alveg makalaus. Sjálfstæðismenn þyrftu svo virkilega á henni að halda.

Réttast hefði verið að flokkarnir hefðuð stokkað upp í lok síðasta árs eins og til stóð. En...... ;) sagan endurtekur sig ekki satt? Alltaf skulu Sjálfstæðismenn vera skúrkurinn.

Þetta minnir mig á hryllingssögurnar um hjónaskilnaði þegar "kallinn" er alltaf skíthællinn. Nú, það er vitað mál að ríkisstjórnin hóf sig á kossaflensi. Ríkisstjórnin endaði með kossi dauðans, svona eins og í Godfather;) Kysstur og hylltur, en þegar á hólminn er komið er aftakan að hefjast, það sýndi sig svo sannarlega á háttarlagi Ingibjargar að hún var ansi - já bara töluvert  illkvittnari í garð Geirs en hann til hennar.

Í þessu sambandi er ..... Samfylkingin þá.... konan?.... ekki satt og Sjálfstæðisflokkurinn.... kallinn.... ekki satt?? Þannig að Sjálfstæðisflokkurinn er vondur og leiðinlegur og allt honum að kenna. Á meðan Samfylkingin er.... kúguð og beitt ofríki... alveg saklaust fórnarlamb aðstæðna.... og gerði ekkert til að leggja til í púkkið um hvernig er fyrir okkur farið.


mbl.is „Ótrúlega ómerkilegt“ af Samfylkingu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Á meðan húsrúm leyfir ertu Vinstri grænn

Veit ekki alveg hvert fréttamennskan er að fara í þessu landi. Í meðfylgjandi frétt, er sagt að það hafi verið húsfyllir, á annað hundrað manns? Vá, hvernig væri bara að segja töluna svona um 109 manns, einn til eða frá;)
Á annað hundrað, reikna ég með að séu 101-149?? Ef fréttamaðurinn hefði sagt VEL á annað hundrað hefði það sennilega verið ca. 150-179?? Annars þá væntanlega bara tæplega 200? Vá ég er alveg ringlaður...

En, djókið hlýtur að vera niðurlag fréttarinnar, að Vinstri grænir eru búnir að sitja á húsfyllisfundi og kynna stöðuna..........sem er.......?????........EN... til allra hamingju var í það minnsta lýst .... yfir stuðningi við ..... að tala við .... fólk??... í öðrum flokki....?? um..... að tala.... saman....?? .... um...???


mbl.is Húsfyllir hjá Vinstri grænum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hrossakaupin á eyrinni - Steingrímur og Ögmundur á leiðinni heim?

Er fólki virkilega alvara með þessari vitleysu? Á að stýra landinu með minnihlutastjórn og hrossakaupum milli þá væntanlegra stjórnarflokka VG og Samfylkingu og leppanna þeirra? Hvað fá Framsóknarmenn nákvæmlega fyrir sinn snúð? - með glassúr? Hvað fá Frjálslyndir nákvæmlega? - meira en hrogn? 

Hvernig stendur svo á því að Ingibjörg er í öllum þessum hrossakaupum og látum? Hún er harla sjón að sjá. Það þurfti að leiða hana og styðja útaf fundi við Forsetann við stjórnaslitin. Það er alveg augljóst að hún er mun veikari en hún kannski sjálf gerir sér grein fyrir og stundum átakanlegt að horfa á viðtöl við hana þar sem hún er sífellt að endurtaka sig við hinum og þessum spurningum án tillit til innihalds þeirra, og sljóvgandi varla stendur. Allavega hefur maður það óþægilega á tilfinningunni að hún falli niður eins og steinn í yfirlið á hverri stundu þegar fréttamenn þjarma að henni. Held að hún ætti að hugsa fyrst og fremst um sjálfan sig og sína heilsu og stíga ALVEG til hliðar.

Eða er Samfylkingin virkilega svo desperat að keyra landið í viðræður við Evrópusambandið að Samfylkingin ætlar að nota allann þann tíma að kosningum, sem er nú harla lítill, til að fara í undirbúning á stjórnarskrá og öllu sem því fylgir á ca. 2-3 mánuðum og í öllu þessu ætla flokkarnir að vera í kosningarbaráttu! Hvað ætli Evrópusambandið dæli miklum peningum í Samfylkinguna til þess að hún tali sínu máli? Það ætti að vera öllum ljóst að Evrópusambandið dælir árlega tugum milljónum til Íslands í áróður með Evrópusambandinu! Hvers vegna? Hverjir nákvæmlega fá alla þessa peninga?

Ef flýta á kosningum enn fremur en í maí n.k., eins og Steingrímur hefur lagt til, hvernig er þá farið  með það  t.d. að ný framboð hafi nokkra möguleika til að koma sér á framfæri? Eða á þetta "Nýja Ísland" að detta í sama drullufarið og menn eru að spóla sig uppúr? Kannski er bara málið að skipta um kennitölu eins og hjá Nýja Landsbankanum og öllum hinum "nýju" bönkunum. Ég gæti t.d. bara skipt um kennitölu og heitið Nýji Björgvin;) Er ekki málið að gefa öllum tækifæri og vernda lýðræðið með þeim hætti að gefa öllum kost á að kynna sig sem til valda vilja komast.

Hvernig fara saman stefnumál VG og Samfylkingar? Þessir flokkar eru algjörlega á öndverðu meiði þegar kemur að atvinnusköpun, skattheimtu, virkjunarmálum, ríkissjóðsmálum, svo ekki sé minnst á Evrópumálin. Engin samstaða liggur í loftinu milli þessara flokka um forgangsröðun.  Er kannski hér gamall draumur þessara gömlu kredduflokka að rætast að allt vinstra liðið sé undir einn hatt komið.

En, Steingrímur sem Fjármálaráðherra!!!! Þetta er að þróast í hina verstu hryllingsmynd. Það þýðir bara: 1) Hærri tekjuskatttur 2) Hærri álögur 3) Nýr hátekjuskattur 4) Fjármagnstekjuskattur 5) Finnur örugglega nýja nefskatta fyrir okkur að borga, pottþétt.
Þannig að allir vitleysingarnir sem eru búnir að eyða tímanum sínum í að mennta sig og fá góða vinnu verða að borga meira en hinir sem ekki nenntu því. Ekki gleyma að allir sem ösnuðust til að leggja til hliðar sparnað fá að kenna hressilega á því, ekki síst afi og amma sem eru búin að strita frá sér alla heilsu að borga af sinni steypu og eignast sparnað - eru þau þá "auðmenn" og eiga að fá að finna hressilega fyrir því að vera framsýn? Hinir nátturulega sem hugsuðu ekki lengra en nefið á sér verða verðlaunaðir með niðurfellingu skulda, jú, sem við hin fáum að borga fyrir þau með hærri álögum:) Frábært!


mbl.is Hittast kl. 14 í dag
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ágúst alveg alsæll og ekkert fúll? Viðreisnarveisla hjá Bjögga?

Hvað er málið? Það sér það hver einasti maður, sem hefur augu og vilja sjá, að samfylkingin er ekki bara sundruð heldur er hún smátt saman að liðast í sundur fyrir augum okkar. Fyrst skellir Björgvin sér á höggstokkinn, svona rétt til að sýna hinum hvernig á að gera þetta, hreinsaði svo úr öllum sínum stofnunum í leiðinni, svona rétt til að sýna lit. En, ekki fyrr en einn óhæfasti stjórnandi í stjórnsýslunni síðari ára fékk feitan og góðan starfslokasamning, ég meina hvað eru 20+ millur milli vina;)

Nú, svo er það hann Ágúst blessaður. Maður getur ekki annað en horft á hans sjónarspil sem tragedíska kómedíu - svo ekki sé sterkara til orða tekið. Ekki fúll?? Bíddu, hvern heldur hann að hann sé að plata. Það er ekki annað en að honum lá við gráti þegar hann minntist þess að hann var algerlega sniðgenginn af sínu flokksfólki þegar kom að ráðherrastólum. Hvers vegna, spyr ég eins og kjáni, var verið að kjósa aumingjans kjánann sem varaformann? Og svo skilja hann útí kuldanum. Ég kalla eftir því við mér fróðari menn að fundin séu dæmi þar sem varaformaður "hins stóra flokksins", eins og samfylkingarmenn kalla sig, fyrirgefðu kölluðu sig, er bara í frostherbergi alla stjórnasetu flokksins með sjálfstæðismönnum.

Ég yrði líka frústreðaður ef ég væri ekki í klíkunni. Fengi flotta kosningu í næst valdamesta embætti flokksins. Svo bara bless! - Nei, þér er ekki treystandi hér, "vinur". - Svona boðskapur hlýtur að bíta á menn fyrr en síðar. Ég er nokkuð viss um að Ágúst hefur komist að þessari niðurstöðu í desember sl., þegar stokka átti upp í ráðherrastólum stjórnarinnar fráfarandi. Þar var enginn stóll fyrir greyið frekar en fyrri daginn, og því ekkert annað að gera en að fara í nám, kannski helst þá til þess að læra meira, "fara í framhaldsnám" - eins og Ágúst orðaði það sjálfur. Jah, hann þarf allavega framhaldsnám í klíkufræðum og "körroptionisma" fyrir næstu innkomu í stjórnmálin - verði þá nokkurn tímann af því.

Nú svo geta þeir Gústi og Bjöggi náttúrulega bara slegið þessu upp í kæruleysi og mynda sinn eigin jafnaðarflokk, og viðreisnarveislan haldin með stæl.


mbl.is Ég er ekki að fara í fússi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bankahrunið - lándráð??

bankahrun copy

Það vekur óneytanlega furðu að mestu hryðjuverkamenn Íslandssögunnar skuli ganga lausir, felandi sig í glæsivillum erlendis með alla sína stolnu peninga og enginn gerir neitt.

Ríkisstjórnir þorir ekkert að gera og segir opinberlega að ekki skuli draga menn í járnum fyrr en sekt er sönnuð. Þetta er nátturulega hlægilegt í ljósi þess að menn eru iðulega settir í gæsluvarðhald útaf minni málum sérlega ef rannsóknaraðilinn telur hættu á því að hinn grunaði muni spilla rannsóknarhagsmunum. Ég fyrir mitt leiti myndi nú halda að þessir menn séu undanfarna mánuði búnir að vera iðnir við að kokka "trúverðugar" skýringar á peningum sem þeir bæði stálu undan skatti hér heima með því að flytja það í "rekstrarfélög" í skattaparadísum. Þarna er strax komið atferli sem er ólöglegt og varðar hegningarlög. Já, það varðar hegningarlög að stela undan skatti. Þetta eitt og sér ætti að vera nóg. Er ekki hinn venjulegi jón útí bæ gerður gjaldþrota, svo í fangelsi þegar minnsti grunur er á að hann skuldi 100 þús. í skatt? Skatturinn hér á Íslandi er nefnilega þeim hæfileika gæddur að í ljósi víðtækra heimilda, þá þarf skatturinn í sjálfu sér ekki að sanna eitt eða neitt, t.d. samanber áætlanir til skattlagningar, þar sem megin reglan hér á landi að þú ert sekur gagnvart skattyfirvöldum uns þú getur sannað sakleysi þitt!!! Hvað er þá eiginlega málið. Hverja er verið að vernda?

Nú er það staðreynd hinn almenni borgari er dreginn með lögregluvaldi til sýslumanna, sinni þeir ekki tilkalli sýslumanns í mætingu vegna fyrirtöku skulda. Hvers vegna ekki okkar heilögu bankamenn.

Væri ekki rétt að líta þetta með ólituðum gleraugum og handtaka alla þá stjórnendur sem "hugsanlega" gætu átt hlut að máli hér, setja þessa menn í gæsluvarðhald, á sama hátt og við myndum koma fram við grunaða glæpamenn? Er það ekki glæpur, já og jafnvel landráð, að með kerfisbundnum hætti vinna gegn hagsmunum Íslenska ríkisins (sem erum jú við;))? Mér finnst í það minnsta ver ansi mikil lykt af peningaþvætti af þeim málum sem upp hafa komið. En, eins og áður, þá gerir enginn neitt, þar sem stofnanir og embætti ríkisins (okkar) telja sig ekki í stakk búið að takast á við þetta.

Þetta er auðleyst!!

Alþingi, getur sett á stofn nefnd þingsins, þá með stuðningi lagasetningar um valdsvið hennar. Þessi nefnd gæti svo látið Interpol, sem meðhöndlar glæpamenn, náð í þessa gúbbulíusa sem eru búnir að kafkeira þjóðfélagið í slíka skuldasúpu að EKKERT fordæmi er til í Íslandssögunni, né á lýðveldistímanum!!!

Mér finnst háttsemi vissra aðila sem hér hafa skilið allt eftir í brunarústum með þeim hætti að hér hljóta að gilda lög um tilraun til landráðs. Það er búið að gera atlögu að íslenskum hagsmunum. Það er allavega von mín að settur sérstakur ríkissaksóknari muni með farsælum hætti svipta drullunni af þessum illa lyktandi skítahaug sem hér hefur verið skilinn eftir af ýmsum svínafeðgum;) og bankabullum.

Ef þessir aðilar eru eins saklausir og þeir segjast vera, og allt hafi verið með felldu, allt rétt gert og farið að lögum, hvers vegna í ósköpunum er ENGINN þeirra hér á klakanum? Ég, íslenski vitleysingurinn, bara spyr.


Hver sagði hvað?

Þá er maður kominn á blessað bloggið. Kannski að maður (vonandi) láti ljós sitt skína örlítið. En það hefur vart farið framhjá mér, frekar en nokkrum öðrum Íslendingi, já alveg niður í 8 ára, að ástandið hér er ansi furðulegt. Allavega, þá er manni orðið svo misboðin vitleysan að maður hefur ekki við því að hirða kjálkann úr götunni. Ég er ekki þekktur fyrir að vera kjaftstopp, en það hefur ískyggilega breyst nú á undanförnum mánuðum frá þessu blessaða kerfishruni okkar. Ætli kjálkinn sé ekki orðinn þreyttur og því neyðist maður til að nota fingurnar;) Enda á ekki penninn (eða lyklaborðið?) að vera máttugri en sverðið?

Já, hugsa sér vitleysuna. Hvaða vitleysingi datt það snjallræði í hug að senda 8 ára gamalt barn til að garga úr sér lungun á Lækjartorgi?? Hér þarf að staldra við! Hafa fullorðnir engin mörk til viðmiðunar við, í það minnsta réttlætis- eða siðferðiskennd? Eða, er þetta það sem koma skal? Að ef ekki er hlustað á fullorðið fólk, þá eru bara börnin send í skítaverkin eins og á forfeðraárum þegar börn voru vinnuþrælar - því fyrr því betra. Mér finnst þetta VÆGT TIL ORÐA TEKIÐ afar ósmekklegt. Til hvers að vera að ata börnunum okkar útí fullorðinsvandamálaskítapittinn með þessum hætti? Er það ekki hlutverk - já og jafnvel skylda -  okkar fullorðnu að vernda börnin okkar fyrir þessu rugli sem er í gangi? Kannski, já, jafnvel skila þeim betra landi en við erum með í höndunum í dag?

Ég reyndar að segja fyrir mitt leiti að mér fannst þetta ógurlega ,,kjút" svona í fyrsta kasti, svo breyttist þetta ,,kjút" í algjörann hroll og mér bara leið illa að mál hér séu orðin svo sver að börnin eru send í skítaverkin.  Er ekki nóg að þjóðfélagið sé GJÖRSAMLEGA á hvolfi? Þurfum við að draga börnin okkar í hluti sem þau hafa engan raunverulegan skilning á. Það sem ég held að hafi fengið á mig var reiðin í barninu, bíddu, hvaðan kom öll þessi heift í 8 ára gömlu barni? Barn sem ekki hefur kosningarrétt fyrr en að 10 árum liðnum - það er svona eftir ca. 3 ríkisstjórnir.

SORRY, veit hvað þú ert að hugsa;) - ...kallinn að bulla og á engin börn... -  ég á tvö yndisleg börn sjálfur, strák á 10 ári og stelpu á 12 ári, og veit það að 8 ára krakki hefur ekkert skynbragð á því sem hér hefur verið að kollsteypast yfir þjóðina. Annars geri ég ráð fyrir því að krakkar fengju kosningarrétt fyrir 10 ára aldur og þau fengju að ráða allt og öllu fram að sjálfræðisaldrinum, t.d. hvort þau færu yfir höfuð í skólann, nammi alla daga, tölvuna í staðinn fyrir út að leika, háttatíminn o.s.frv., væri þá ekki í lagi fyrir þau að aka bíl?

Ef fólk hefur áhyggjur af því að börnin blóti öllu illu við ástandinu og vilji tjá sig, þá held ég að flestir sem til þekkja að það endurspeglar fremur en annað hvað á sér stað umræðulega á heimilinu. Enda dylst það engum að börn fara með vandamálin sín af heimilinu í skólann og öfugt. Börn eru lika afar viðkvæm og næm fyrir áhyggjum okkar sem eldri erum og þeirri streytu sem þjakar okkur. Væri kannski ekki réttast að frekar leyfa þeim að fá útrás með því að skrifa bréf, hjálpa þeim svo að póstleggja það - hætta svo að horfa á fréttatímann í botni til þess eins að heyra næstu hryllingssögu í fréttunum? Ætlar einhver kannski að halda því fram að börn hafi raunverulega hugmynd um hvað  í gangi er, þegar við vart skiljum það sjálf? Með bréfi gefst allavega smá tími til að íhuga og ígrunda málið frá fleiri en hlið pabba og mömmu. Nei, það ætlar enginn að segja mér það að 8 ára gamalt barn hafi samið þessa ,, gargandi ræðu". Ekki misskilja mig, er ekkert að gera lítið úr því sem þessi 8 ára Íslendingur var að gera, heldur þeim skilaboðum sem verið er að senda hinum börnunum sem hugsanlega horfðu uppá þetta og við sem fullornir erum orðin verðum bara að bíta í tunguna á okkur - enda er það ekki börnunum okkar að kenna hvernig fyrir landinu er komið, er það? 

Það sem kannski vekur furðu mína mest með þetta mál, er að það virðist öllum sama um þetta, voða kjút allt saman. ,,Blessaður, leyfðu barninu að tjá sig..... gott að fá útrás svona"... var þetta hugsunin á bakvið þetta? Langflestir, sem betur fer, hafa verið sammála mér um ósmekklegheit þessi. Hver eiginlega heimilaði barninu að tala? Væntanlega hefur foreldri komið þar að, og ég býst við því að fundarstjóri hafi haft leyfi foreldra/foreldris? Væri ekki eðlilegast að halda fundarmönnum við kosningaraldurinn eða í það minnsta hverjir væru kosningarhæfir eftir 6 mán. til 2 ár?

Auðvitað er ekki nokkur möguleiki að ofvernda börnin á þann hátt að einangra þau alveg. Þau geta jú vel lesið, ekki satt. Dóttir mín greip frétt í blöðunum um ástandið í Palestínu og meðferðina sem þeir hljóta frá Ísraelum. Þetta fékk mikið á hana of fannst þetta illa gert að ráðast svona á minnimáttar. Eftir svona rúmlega hálftíma umræðu við hana um þetta mál þá spurði hún mig hvað ég myndi gera. Ég snéri spurningunni við og spurði hana um hæl hvað hún sjálf myndi vilja gera. Hún svaraði um hæl: ,,sko, veit ekki, en mig langar svo að senda Obama bréf". Auðvitað stökk pínu bros á kallinn, en krakkar hafa líka skoðanir, það veit ég, og það þýðir ekkert fyrir kallinn að bakka með þetta, þannig að við feðginin erum að semja bréfið, ég þá í enskuþýðingareftirlitinu og mun að öðru leiti ekki skipta mér af innihaldinu:) Mér samt dytti aldrei í hug að draga barnið í eina einustu mótmælagöngu. Þegar hún er orðin nógu þroskuð og gömul til slíkra hugpælinga þá tekur hún þær ákvarðanir sjálf á sínum forsendum fyrir sjálfan sig.

Allavega ætla ég að nýta mér nýfundið skoðunarfrelsi og senda þau skilaboð að þeir mega skammast sín sem láta börn taka þátt í fundarmótmælum með þessum hætti. Þau eiga að fá að tjá sig, en hvernig þá að gera það beint til þingsins eða til þess sem pirringurinn beinist að, fremur en að varpa þeim í ljónagryfjuna. Leyfum börnunum okkar að vera börn. Við hin sem eigum að teljast fullorðin, höfum vit á því skulum þess í stað að halda okkur við að garga á Alþingi og alla hina meðan börnin eru við leik og störf í skóla, enda er þetta fólkið sem við kusum yfir okkur og þar liggur okkar ábyrgð.


« Fyrri síða

Um bloggið

Björgvin Ólafur Óskarsson

Var ekki bara tími kominn til að maður myndi ropa einhverju útúr sér. Mér finnst samt einhvernveginn betra að gera það með nútímaþægindum, laus við veður og vind, og vopnaður lyklaborði:)

Höfundur

Björgvin Ólafur Óskarsson
Björgvin Ólafur Óskarsson

Umfram allt er maður Poolari fram í rauðann dauðann!!! þar fyrir utan búinn að vinna við sölu fasteigna og fyrirtækja í yfir 17 ár:), rek slíka ásamt föður mínum, sjá "www.atv.is" ... í tölvu- og hugbúnaðargeiranum í 5 ár. Ég er kerfisfræðingur með 4 löggildingar tengdum fasteigna- og verðbréfaviðskiptum. Hef setið í ýmsum starfshópum og nefndum ungliðahreyfingar sjálfstæðisflokksins í gegnum tíðina.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • betty-boop-cell
  • Funny20-20Mom201
  • sig_hrei
  • bankahrun copy
Leita í fréttum mbl.is

Spurt er

Ætlar þú að flytja úr landi og freista gæfunnar?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband