Færsluflokkur: Bloggar

Hvar er vítaminið?

Þetta er allt gott og blessað. Hefur fjármálaráðuneytið ekkert betra að gera en að vinna fyrir IMF?

Hvernig væri að háttvirtur fjármálaráðherra, ásamt ráðuneyti, gerðu tillögur að hvernig innspýtingu stjórnvöld ætla að koma inní hagkerfið?

Mér skilst að seldar fasteignir hafi verið um 1800-1900 á árinu 2009. Fasteignir seldar á árinu 2010 voru á bilinu 1200.

Svona til upplýsingar þá var 2009 lægsta söluár fasteigna í 50 ár!!! Ári seinna var það rækilega slegið. Í venjulegu ári gætu átt að seljast um 7.000 + eignir (sem er reyndar AFAR magurt).

HVENÆR ÆTLA STJÓRNVÖLD AÐ KOMA FRAM MEÐ STEFNU ÞAR SEM FÓLK MUN VILJA VINNA, VILJA BÚA Á íSLANDI, VILJA GERA BETUR?? Jú, og kannski sjá til enda ganganna!

kv.
Bjöggi. 


mbl.is Ríkið mótar stefnu í lánamálum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnvöld reima eigin skó, en...

... vita ekki í hvern fótinn þeir eiga að stíga í þessu máli, frekar en öðrum málum sem þeir "ætluðu" að takast á við.

Þetta er búið að vera æskudraumur krata og komma að koma þessu kerfi í ríkishendur og öllum heimildum þess.

Framsóknarmaðurinn, Halldór Ásgrímsson, sem hannaði kerfið fyrir sjálfan sig og sína fjölskyldu - og vandamenn, er löngu farinn úr pólitík, og framsóknarflokkurinn drapst þegar hann fór. Guðni gerði ekkert annað en að kissa beljur og hagyrða.

kv. 
Bjöggi


mbl.is „Það er óskiljanlegt að óvissunni skuli ekki vera eytt“
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jóhanna, gerir þú þér grein fyrir því að...

... þú ert að komast á eftirlauna-aldur? 

Gerir þú þér grein fyrir því að  þú lofið að hjálpa, sérstaklega, eldri borgurum, vegna þess að "bláa hendin" væri svo vond við þá?

Ég er hinsvegar 100% viss um að þú munt í ellinni þinni ekki hafa sömu kjör og þau;) ekki satt?

 

kv.
Bjöggi. 


mbl.is Bág kjör aldraðra
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ef þú ættir sendibíl, og einhver...

... ríkisstjórnarflokkur, myndi segja við þig: "Á næstu 10 árum munum við innkalla og ríkisvæða alla sendibíla sem keyra á Ríkisvegum landsins!!"

Myndir þú þá stökkva til og gera áætlun um að kaupa nýjan sendibíl á næstu 5 árum? Eða myndir þú byðja til Guðs að ný rikisstjórn tæki við?

kv. 
Bjöggi.


mbl.is Forðast frekari fjárfestingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vér stöndum allir saman og eigi...

... skulu vér borga:) Þetta gæti verið slagorð "Nýja-Íslands".

Það er ekkert að því að ganga lagalegu leiðina. Allavega í versta falli munum við "kaupa" mjög góðan og dýrmætan tíma.

Ef við vinnum málaferlin, þá getum svo sannarlega kallað þetta "nútíma-þorskastríð" okkar tíma. Og Ísland vann aftur! 

Ef við töpum málaferlum, þá getum við allavega verið viss um að við vekjum svo mikla athygli að þessu bull máli að það gæti hjálpað okkur meira en við gerum okkur grein fyrir.  

Ok, í alvörunni. Dettur einhverjum í hug að eitthvað "lagist" við það að setja þjóðina núna, sem er í blæðandi sárum að ná sér á fætur, og næstu 3-4 kynslóðir, í skuldafen til að fatlað eftirlitskerfi Breta og Hollendinga fái ekki hnekki.

Var einhver búinn að gleyma því að þessir aðilar (UK og NE)  næstum því ropuðu útúr sér að þeir myndu gera "case-study" útúr Íslendingum. Þeir vissu þá að Írland væri vaggandi, Portúgal, Grikkland, og fleiri þjóðir sem ég man ekki akkurat núna. 

Það mun ekkert slæmt gerast þótt þetta frumvarp verði fellt. Hræðsluóróður hefur alltaf verið settur fram til að hræða fólk til að greiða. Bæði af EU, sem jú, dælir inn peningum m.a. til Samfylkingarinnar til að halda uppi EU umræðu og inngöngu.

Það á að gera fordæmi úr Íslendingum: "Sjáið bara hvað gerist ef þið haldið að þið komist upp með að borga ekki!!"

Bottom line: Gefa fjármálakerfinu smá tíma til að koma hlutum af stað hér innanlands FYRST! Svo getur fjármálakerfið farið útí að gera plön að greiða þetta tilbaka. 

kv.
Bjöggi 


mbl.is Hefur ekki tekið afstöðu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ekki alveg viss...

... en, þetta gæti mögulega verið jákvætt.

Allavega fyrsta framfaraskrefið í eitt og hálft ár. Ég allavega gerði ekki útreikningana, en þeir hljóta að vera orðnir ansi langir, gefandi sér það að þeir hafi gert það á gamla mátann í höndunum:)

Reikna samt fastlega með því að hugbúnaðarsérfræðingar, stærðfræðingar, og peningaverkfræðingar, hafi verið nokkuð fljotir að útbúa hugbúnað til að bæði finna þessi lán, reikna þau og útbúa tilkynningalistana.

Allavega, jákvætt skref. Kannski AÐEINS of seint. Hei, mundu bara íslenska mottóið "Betra er Seint en Aldrei!".

kv. 

Bjöggi. 


mbl.is Við það að ljúka endurútreikningi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Vildi bara minna Steina og Siggu á að Sovétríkin...

... féllu!!!

Krakkar, nei, það þýðir ekkert að hunsa það, ok! Sósíal-Jafnaðarstefnan hefur ALLTAF tapað!!! Ef þið haldið einhverju öðru fram, þá þarf að kenna ykkur fjármálasögu Vestrænna Ríkja!

Gott að einhver úr stjórninni ropaði útúr sér markmiðinu. Nú er rétta andlitið að koma í ljós!

Nota kerfið sem "jöfnunarkerfi launa"? Það þarf að koma þessu fortíðarpakki frá völdum og það í hvelli. Það er helst eins og að gamall sósíalskur draumur sé að rætast - landið er að komast aftur til 7. áratugarins, og jafnaðarmenn, já, ykkur er að takast að "jafna" allt við jörðu. 

Sigga, og Steini. Vill bara benda á að þótt 3500 tekjuháir Íslendingar geti haldið uppí stofnun á borð við spitala á Akureyri, þá eru skattgreiðendur í heild sinni varla meiri en 100 þús. ?

Ef þið haldið þessu áfram, þá fara þessir 3500 tekjuháu einstaklingar, og sennilega bróðurpartur af meira menntuðu fólki hugsa sér til hreyfings. 

Það er alveg magnað að það skuli þrífast svona mikil fáfræði og barnalegheit. Fólk sem hefur vel efni á að sjá sér farðborða mun ekki láta taka allt af sér í skatta til að borga fyrir ríkisstörf! Þetta fólk mun einfaldlega fara eitthvað annað.

Það er engin sanngirni í því að aðili sem hefur eytt 10 árum í að sérhæfa sig í grein sé svo illa skattlagður að hann gæti verið að skúra gólf og fá jafn mikið útborgað.

Vá, fólk í stjórninni er ALVEG VERULEIKA FIRRT! Alveg gjörsamlega!

VAKNA!!

kv.
Bjöggi 


mbl.is Skattkerfisbreytingar tekist vel
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Til vinstri eða hægri??

Bíddu? Var það ekki vinstri vængurinn sem gargaði síðast að það væri verið að "troða" á fólki? Er málið ekki komið í hring? Eða, er þetta vinstri leiðin? : " Ahhh, svo þetta er niðurstaðan gott fólk? Nú, þá er best að setja málið í HengingarÓlina! Þá verður kostnaðurinn við niðurstöðuna allavega tvöfaldur, og fólk verður ennþá fúlt:)? "...

Ég vona að þetta blessist. Ég hef verið inná báðum þessum stofnunum og ekki hægt að bera saman. Er St. Jósefssp. betur borgið undir Landspítalanum? Ég er ekki sannfærður. Það er einhvern veginn þannig á Íslandi í heilbrigðisþjónustu, að menn ætla að spara á pappír xxx kr. Menn finna leiðir á pappír til að spara xxx kr. Þegar uppi er staðið þá enda menn með dýrara apparat en í upphafi leiðangurins.

Mér er minnugt þegar Borgarspítalinn var soginn inní Landspítala-skrímslið. Kannski að einhver dusti rikið af þeim skrám! Mér er allavega í fersku minni að menn urðu að lokum vonarvana og klóruðu sér mikið í kollinum að "planið" fór ekki alveg eins og ... "planað". Endaði með að kosta meira á endanum og þá datt snillingunum í hug að kalla þetta "aðlögunar-tímabil".

Þetta verður spennandi farsi að fylgjast með. Kannski slær þetta út sápuóperunum við og verður hið nýja "Glæstar Vonir":)

kv.
Bjöggi. 


mbl.is Sorgardagur á St. Jósefsspítala
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Bubbi - Værir þú til í...

... að semja lag, um að banna notkun á nafninu "Icesave". Eða svona "varnaðar-vísu". Eitthvað sem bítur og krassar. Svona svipað og þegar fólk sagði hrollvekjusögu á kvöldin í skítakulda á miðöldum til að skemmta sér og hræða aðra.  Ég er alveg sannfærður að þú ert maðurinn í verkið.

 Ég held að ég tali fyrir margra munn á Klakanum að allir eru meira en lítið þreyttir og örmagna að hlusta á fréttir tengdar þessu frekar ógeðfellda máli. 

Kannski verður Icesave sett í lög eins og helförin er í þýskum lögum. Það verður skömm að tala um það en þú mátt ekki afneita því.  Þetta gerðist - skilið!! 

 

kv.

Bjöggi. 


mbl.is Skoðað hvort fjármálafyrirtæki beri kostnaðinn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hugmynd við sölu banka...

Látum oss nú sjá. Seldum bankana einu sinni. Klúðruðum því á kjarnorkusprengju-mælikvarða. Þ.e. fólkið sem við kusum við stjórnvölin þá. 

Nú er tækifæri að láta nýja kaupendur kaupa bankana með "kaup-auka". Kaupaukinn felst í því að hver banki sem seldur sé, tekur að sér að gera upp gamlar syndir hinnar kennitölu bankans. Þ.e. Borga öllum innlendum birgjum sem ekkert fengu úr gjaldþrotinu. Borga svo öllu erlendum birgjum sem fengu ekki neitt heldur úr gjaldþrotinu. Borga svo viðeigandi gjöld í tryggingasjóði hér við Seðlabankann og hinn evrópska og skandinaviska.

Þegar ríkið semur við sjálft sig um að greiða 20% uppí gjaldþrot, þar sem sami aðili situr sitthvoru megin við borðið. Og þetta menntaða rugludallalið dirfist að ropa því útúr sér að þetta "gæti" endað á skattgreiðendum??

Hvernig væri að selja bankana með slíku fyrirkomulagi? Nú, ef enginn vill bankana, þá erum við ekkert verr stödd. það mun hvort eð er engin bankastofnun utan Íslands fara í "blóðuga" samkeppni í þessu örþjóðfélagi.

Það er kannski gott að fara hugsa aðeins út fyrir boxið, og sturta úr Alþingi eftirlaunaþegunum. Ég get ekki ímyndað mér að yngra fólk geri mikið verra úr því sem komið er. Þau verða allavega lifandi til að sjá afleiðingarnar, og börnin þeirra, og barnabörnin, og barnabarnabörnin.  

Hvað varð um allar þessar "jákvæðu" og "nýju" strauma sem áttu að umleika okkar háttvirta Alþingi? Núna bara halda allir kjafti:)

kv.

Bjöggi. 


mbl.is Innistæðutryggingagjald í Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Um bloggið

Björgvin Ólafur Óskarsson

Var ekki bara tími kominn til að maður myndi ropa einhverju útúr sér. Mér finnst samt einhvernveginn betra að gera það með nútímaþægindum, laus við veður og vind, og vopnaður lyklaborði:)

Höfundur

Björgvin Ólafur Óskarsson
Björgvin Ólafur Óskarsson

Umfram allt er maður Poolari fram í rauðann dauðann!!! þar fyrir utan búinn að vinna við sölu fasteigna og fyrirtækja í yfir 17 ár:), rek slíka ásamt föður mínum, sjá "www.atv.is" ... í tölvu- og hugbúnaðargeiranum í 5 ár. Ég er kerfisfræðingur með 4 löggildingar tengdum fasteigna- og verðbréfaviðskiptum. Hef setið í ýmsum starfshópum og nefndum ungliðahreyfingar sjálfstæðisflokksins í gegnum tíðina.

Mars 2024
S M Þ M F F L
          1 2
3 4 5 6 7 8 9
10 11 12 13 14 15 16
17 18 19 20 21 22 23
24 25 26 27 28 29 30
31            

Nýjustu myndir

  • betty-boop-cell
  • Funny20-20Mom201
  • sig_hrei
  • bankahrun copy
Leita í fréttum mbl.is

Spurt er

Ætlar þú að flytja úr landi og freista gæfunnar?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband