Færsluflokkur: Bloggar

Er þá ekki réttast að selja ...

... Gerard líka? Hvaða lyfjum eru þessir menn eiginlega? Liðið er í sjöunda sæti, sem er ekki möguleiki í meistaradeildina, og ekki einu sinni UEFA. 

Þurfum við að bíða í 10 ár núna eins og á 9. áratugnum? þannig að eitthvað fari að gerast?

 Kannski eru menn bara að vona að Gerard verði svona annar Ian Rush eða M Owen. Held það samt gerist ekki á næstunni. Lakkríslengjan og Norðmaðurinn farnir  líka. Benitas þjálfari.  

Lítur út að þeir ætli að sturta liðinu í klósettið ... vonandi til að byggja það upp. En hvernig ætla menn sér að halda úti topp liði með þvi að selja alla bestu lykilmennina sem gera liðið að því veldi sem það hefur verið frá upphafi.

 Allavega, vona að einhver þarna úti með meira vit í kollinum en ég fatti hvað er í gangi hjá mínu ástkæra liði. 

kv.

Bjöggi.  


mbl.is Liverpool staðfestir sölu á Torres
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Þegar gera skal eitthvað...

... sem aldrei hefur verið gert áður, þá skal skapa hefðina.

Kosningar þar sem þú færð nokkur hundruð nöfn til að velja úr er jafn tilgangslaust og tilviljanakennt og taka þátt  lottóinu og halda að maður hafi 50/50 möguleika. 

Ég ætla ekki einu sinni að reyna að þykjast vita hvað er best í þessu. En, eitthvað segir mér að besta útkoman hljóti að koma frá Alþingi. Það hefur þegar verið kosið fólk á þing. Rolurnar þar blessuðu hafa ekki nein bein í nefinu (reyndar þrátt fyrir allt er það brjósk....) og taka ákvörðun í þágu kjósenda sinna. Nei, best að eyða tíma, mannskap og DÝRMÆTUM skattapeningum í að "kjósa" skrilljón manns.

En, kannski er best að stjórnlagaþing sé best úr garði gert af atvinnupólitíkusum í sambland við okkur almúgann. Þannig kannski reynist það auðveldara að fólk komist á jörðina með hvað "hin hliðin" hugsar.

En hvernig ætlar fólk að mynda sér skoðun á fólki sem það veit ekki tangur né tetur á, hvort það er klárt í kollinum eða nýsloppið af kleppi.

Vona bara að okkar fróða fólk, og vel menntuðu fræðimenn, komi pólitíkinni í skilning um hvað þarf að gera, og séu ekki hræddir við að láta skoðanir sínar í ljós vegna tengsla ríkisins við allar menntastofnanir landsins.

Ekki reyna að plata sjálfan þig. Stjórnvöld eru í eðli sínu eins og eining, mun gera allt sem í þeirra valdi stendur til að lifa og stjórna... helst þér:)

kv.

Bjöggi. 


mbl.is Kjörið er ótraust
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

IMF ætti að taka...

... sér laaaaangt frí. Ég meina svona kannski 100 ár eða svo.

Trúi því bara ekki að IMF skuli alltaf vera síðasta stáið. Það er allavega klárt að enginn tala um að IMF er vægt til orða tekið umdeilt batterí. En batteríið er knúið af Bretum, Þjóðverjum, og ekki síst Bandaríkjunum. Eða, er fólk búið að gleyma því hvað IMF gerði í Argentínu? Öll helstu fyrirtækin þar enduðu svo í höndum Bandaríkjamanna :) Húrra fyrir IMF hendi USA. Þeir ættu að breyta þessu apparati í GUYS /  = Give Us Your Stuff

Ég bara fatta ekki hvers vegna þetta var eina leiðin, þar sem vitað og sannað mál er að það er ALLTAF hægt að komast yfir peninga. Þeir kannski eru bara á öðrum kjörum en gerist þegar hagkvæmast er.

En, vona að þetta sé í síðasta skiptið sem við leitum til þessa ömurlegu einkahagsmunastofnunar. Gætum jafnvel gert eins og Argentínumenn gerðu á endanum og vörpuðu IMF fyrir borð. Veit ekki betur en Argentína sé enn á landakortunum í dag. Allavega, önnur umræða fyrir annan dag.

kv.

Bjöggi 

 


mbl.is AGS: Ójöfnuður hægir á efnahagsbata
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myndu þau nenna...

...að labba til Washington? Held að það gæti verið að Egyptar eigi nokkuð vantalað við stjórnvold BNA. Allavega virðist vera skv. erlendu fréttastofunum að Kaninn hafi (að sjálfsögðu) dælt inn peningum á þetta svæði.

Það sem aðila hafa mestar áhyggjur af er að SH2 taki við (SH= Saddam Hussein). Þá verður allt kolvitlaust nátturulega, ef Egyptar skyldu nú detta í hug að fara hugsa á eigin forsendum:)

 Enn fyndnara er hvað þetta kemur öllum í opna skjöldu. 

kv.

Bjöggi. 


mbl.is Egyptar undirbúa milljón manna göngu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nýársheitið.... man einhver?

Sko ... here goes...

Jú, gerir maður ekki alltaf sömu mistökin, ár eftir ár, eftir ár, eftir ár? Þannig að maður setur sjálfan sig í ómögulega og ósanngjarna stöðu, gagnvart sjálfum sér. Gefa sjálfum sér loforð sem maður veit að maður svíkur. Það er töff og flott fyrstu þrjá daga ársins, en svo tekur skammdegið og vinnudagur þar sem þú gerir þér grein fyrir því að jóla-fríið er búið.

En, ég held að í fyrsta skiptið í langan tíma, þá hafi ég haft nokkuð raunhæft markmið, og nokkuð mikilvæg. Það er að blogga eitthvað jákvætt. Gefa smá já inní lífið. Það er nefnilega ekki nóg að hugsa alltaf jákvætt (haha... veit ... það eru allir alltaf að segja að það sé major málið). Maður þarf að þjálfa sig í ákveðnum háttum, háttalagi og hugarfari. Maður þarf að af-þjálfa (sorry... fann ekki betra orð) sig af ýmiss konar mjög slæmri hegðun. (very bad djudju).

Vandamálið er, við föttum þetta aldrei sjálf. Það þarf alltaf einhvern annan til að benda á það sem betur mætti fara, gefandi sér að sá og hinn sami einstaklingur sé "betur farinn" en maður sjálfur.

Allavega, það er stórkostlega magnað hversu ofboðslega margt sem við gerum og segjum, hefur alveg hrikalega neikvæð áhrif, og stoppar mörg okkar frá því að geta fullnýtt (eða allavega að einhverri hærri prósentutölu) þann kraft sem við höfum innra með okkur. 

Þeir sem vita hvað ég er að tala um eru núna að garga hástöfum "Haleluja" eða "Amen". 

Þannig að á komandi viku ætla ég að finna mér tíma til að rita á hitt nýja bloggið mitt (okok... ef þú ert ekki crazy Liverpool aðdáandi... ertu samt velkomin/n). linkurinn verður hér til vinstri.

já-kveðja,

 Bjöggi.


Steini ekki hætta...

Við skulum ekki hætta fyrr en kommarnir og kratarnir hafa JAFNAÐ ALLT... við JÖRÐU!!!

 Af hverju að undanskila sjávarútveginn frá öðrum gjaldþrota grunngreinum??

Er þetta ekki það sem Steini kallinn vill?? Koma öllu draslinu í hendur ríkisins??

 Held að hér sé best að gera eins og ávallt í svona málum... elta peningana!! þá komast menn að hinu sanna nútíma-socialisma. Hvaða vinir VG og Samfylkingar munu nú hreppa gnossin?? Eða verður þetta svona rússnesk rúlletta?

 

kv. Bjöggi


mbl.is Leiðir til gjaldþrota í sjávarútvegi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það greinilega sagði honum enginn....

... hvað Óli kallinn gerði þegar hann var ráðherra... fjármálaráðherra. Hey, spurðu einhvern sem man:)

 Annars er þessi Ian Bremmer nokkuð fær í sínu fagi. Þannig að hver segir að einstaklingar geti ekki breyst og þroskast. Takk Dorrit:)

 

kv. Bjöggi.


mbl.is Hreifst af Ólafi Ragnari
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Það sem ég segi...

Jæja kæri lesandi. Takk öll sömul fyrir innlitin. Þrátt fyrir slappann "penna" lol:) að þá hafa a.m.k. all margir séð sér leið inná bloggið mitt. Takk og gleðilegt ár:) 2011... Látum það vera upphaf að einhverju betra fyrir Ísland og Íslendinga. 

Það verður bara að segjast eins og er að klakinn varð ekki betri með kommum og krötum. Já, þar sem við höfum ennþá óskaddaða stjórnarskrá, þá er best að tjá sig af einhverjum mætti.

Ég hef ekki bloggað svo lengi að það eru heilir 21 mánuður síðan. Það AFAR sorglega við það er að sama kreddan virðist hrjá klakann mér finnst ég vera að lesa sömu fréttirnar... aftur... aftur... aftur... aftur... aftur og aftur. Veit hvað skal segja, en það er svo mikil Anti-Hægri-Stefna í gangi að fólk er alveg að tapa sér.

Kommar og kratar dansa í kringum varðeldinn sinn til að ríghalda í einhver völd. Fólk getur ekki einu sinni haldið kosningar til stjórnlagþings án þess að klúðra því illa, og eyða peningum skattgreiðanda útí bláinn. Sérlega vegna þess að íslenskar fjölskyldur vaða í peningum þessa dagana. 

En, kannski getum við risið uppfyrir peningabullið. Eftir allt saman, hvernig deyjum við? Á sama hátt og við fæðumst. Allsber eins og krækiber og án peninga og veraldlegra gæða. 

Nei, ég er ekki að hoppa í biblíuna og lesa yfir ykkur. En, hugsaðu þetta. Hvað er það á endanum sem skiptir raunverulegu máli? Er það hversu mikla peninga þú átt núna? eða er það AUÐURINN sem þú getur umlukið sjálfan þig af ást og umhyggju. (vá, já, ég  veit, rosa væmið).

Vona að fyrir ykkur öll að 2011 sé upphaf að einhverju meiriháttar jákvæðu í ykkar lífi.

Ef þú hefur eitthvað jákvætt sem þú deila með mér og hinum, ekki bara hugsa það, segðu það. Þér og okkur mun líða svo miklu miklu betur.

kv. Bjöggi.


Jahérna...

Þetta er nú alveg kræstómægtí kreddan.... Ég ekki búinn að opna á mér kjaftinn frá því í apríl??? Sýnist nú bara ekkert búið að gerast síðan. Jahérna....

Kostningarnar framundan. Allir ætla að moka flórinn. Allir ætla að bjarga allt og öllum. Hverjum á eiginlega að bjarga?? Hverjum þarf að bjarga?? Þarf að bjarga einhverjum?? Er einhver björgunarverður??

Hvað ætlar hver að gera hvenær og hvernig? Veit þetta einhver?? Er ekki Lóan að koma??

EN VÁÁÁ!!! Mikið rosalega eru páskarnir búnir að vera MÓFÓ flottir. Ég verð bara að segja, þótt að ungur sé (hehehehehehehehehehehe), þá bara man ég bara ekki eftir páskum..... svona í fljótu bragði, þar sem sól, hægviðri, og sumarylur hefur leikið ljósu lokkana (hehehehehehehehehehe) mína alla páskana hér á suð-vesturhorninu, ég meina skírdagur.....föstudagurinn langi var bara óvenju fljótur að líða.... laugardagur -----whatever-----.... páskadagur æði.... annar í páskum helmingi meira æði.... pínu nístí kulda.... en samt bara alveg æðislega rjómsíríussúkkulaðiveðurblíða:)LoL

Svo það æðislegasta.... náði loksins að hrinda frá mér vinnuokinu og slappa af. Held bara að ég hafi gleymt því þarna á smá kafla hvernig maður gerir svoleiðis. En.... það var ekki við súpuna setið.... heldur farið með allan krakkaskarann í hafnarbolta með öllu tilheyrandi:) Þetta var fallegur dagur.l


« Fyrri síða | Næsta síða »

Um bloggið

Björgvin Ólafur Óskarsson

Var ekki bara tími kominn til að maður myndi ropa einhverju útúr sér. Mér finnst samt einhvernveginn betra að gera það með nútímaþægindum, laus við veður og vind, og vopnaður lyklaborði:)

Höfundur

Björgvin Ólafur Óskarsson
Björgvin Ólafur Óskarsson

Umfram allt er maður Poolari fram í rauðann dauðann!!! þar fyrir utan búinn að vinna við sölu fasteigna og fyrirtækja í yfir 17 ár:), rek slíka ásamt föður mínum, sjá "www.atv.is" ... í tölvu- og hugbúnaðargeiranum í 5 ár. Ég er kerfisfræðingur með 4 löggildingar tengdum fasteigna- og verðbréfaviðskiptum. Hef setið í ýmsum starfshópum og nefndum ungliðahreyfingar sjálfstæðisflokksins í gegnum tíðina.

Apríl 2024
S M Þ M F F L
  1 2 3 4 5 6
7 8 9 10 11 12 13
14 15 16 17 18 19 20
21 22 23 24 25 26 27
28 29 30        

Nýjustu myndir

  • betty-boop-cell
  • Funny20-20Mom201
  • sig_hrei
  • bankahrun copy
Leita í fréttum mbl.is

Spurt er

Ætlar þú að flytja úr landi og freista gæfunnar?

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband