3.2.2011 | 08:54
Hvar er vítaminið?
Þetta er allt gott og blessað. Hefur fjármálaráðuneytið ekkert betra að gera en að vinna fyrir IMF?
Hvernig væri að háttvirtur fjármálaráðherra, ásamt ráðuneyti, gerðu tillögur að hvernig innspýtingu stjórnvöld ætla að koma inní hagkerfið?
Mér skilst að seldar fasteignir hafi verið um 1800-1900 á árinu 2009. Fasteignir seldar á árinu 2010 voru á bilinu 1200.
Svona til upplýsingar þá var 2009 lægsta söluár fasteigna í 50 ár!!! Ári seinna var það rækilega slegið. Í venjulegu ári gætu átt að seljast um 7.000 + eignir (sem er reyndar AFAR magurt).
HVENÆR ÆTLA STJÓRNVÖLD AÐ KOMA FRAM MEÐ STEFNU ÞAR SEM FÓLK MUN VILJA VINNA, VILJA BÚA Á íSLANDI, VILJA GERA BETUR?? Jú, og kannski sjá til enda ganganna!
kv.
Bjöggi.
|
Ríkið mótar stefnu í lánamálum |
| Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt | |


vefritid
glamor




Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.