Færsluflokkur: Bloggar
29.1.2009 | 12:26
Duttu um leið á hausinn.
Þetta er áhugavert test fyrir væntanlega ríkisstjórn. Ætli Framsókn heimti að gengið verði í hörku útaf Icesafe? Steingrímur var allavega mjög á skotskónum og gagnrýndi hart þegar fráfarandi ríkisstjórn sagði OK, þegar ESB í allri sinni mynd (já, meira að segja Danir og Svíar) fóru með fullum þunga og gerðu ráðamönnum það skýrt til athugunar, að ef ríkissjóðurinn íslenski myndi ekki ábyrgjast, þá myndi ESB ekki hætta á að það myndi búa til fordæmi og holskefla af sambærilegum málum myndi fylgja í kjölfarið. Ísland myndi borga, eða, Ísland myndi fá það borgað - þannig að ESB myndi hafa einangrað okkur, hugsanlega beitt okkur nokkurs konar efnahagsþvingunum. Allavega má gera ráð fyrir því, m.v. viðbrögð Breta við fjármagnsflutningum sem áttu sér stað korteri fyrir hrun.
Þá er að sjá hvort við náum ekki endanlega að komast tilbaka á steinöld, þegar VG og Framsókn, já og Samfylkingin eru búin að brenna brýrnar okkur að baki.
Fólk virðist alltaf gelyma því að það eru líka eignir að baki þessara skulda, ekki bara skuldir. Hentugt er fyrir ríkissjóð að hinkra með sölu þessara eigna, vernda þær, þannig að þær verði söluhæf vara innan fárra ára. Enda er ekki hjá því að líta að í heiminum í dag er almennt hallæri og eignaupptaka í formi verðfalls á eignum og verðhækkana vegna innflutnings og framleiðslu.
Opnast Icesave-málið að nýju? | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2009 | 11:44
Framsókn í frosti og Frjálslyndir farnir að veiða.
Þetta skýtur nú ansi skökku við. Í upphafi viðræðna í byrjun þessarar viku, þá héldu formenn þessara flokka Samfylkingu og VG því fram að þetta tæki snarta stund, þar sem flokkarnir lægju svo nálægt hvor öðrum. Sýnist sem svo að þetta ætli að vera erfitt fyrir VG að kyngja ESB bitanum, sem kom svona með í desert.
Tek undir með sem hafa verið að blogga og haft uppi áhyggjur um að þetta yrði svona popularisma-stjórn. Þ.e. allra mikilvægustu, og kannski allra nauðsynlegustu (og pottþétt erfiðustu og óvinsælustu) aðgerðirnar munu sitja á hakanum fram yfir kosningar í vor. Hví þetta er svo erfitt að semja sig áfram um næstu 2-3 mánuði????? Jah, það er von að maður spyrji. Eru verkefnin ekki ærin? Sagðist Samfylkingin og Vinstri Grænir vita NÁKVÆMLEGA hvað þeir ætluðu að gera?? Það þyrfti bara tvennt, skúra í Seðlabankanum og frysta Sjálfstæðisflokkinn.
Framsóknarflokkurinn hlýtur að vera frústreraður. Sérlega í ljósi yfirlýsinga þingmanna hans síðustu tvo daga, og ekki síst nýs formanns Framsóknar um að eitt að skilyrðum þeirra fyrir stuðningi við minnihlutastjórn yrði að þeir kæmu að einhverju leiti að borðinu í upphafi til að hafa pínu um það að segja hvað þeir væru að styðja. Ekkert hefur orðið að þeim fyrirheitum S og VG.
Frjálslyndir hljóta bara að klóra sig í hausnum, því eftir þvi sem ég best veit (leiðréttist ef ég hef það ekki rétt) þá þarf Frjálslynda líka til að verja minnihlutastjórn. þeir hljóta bara að horfa á skýin og dorga niður á bryggju eftir kola.
Mér er það mikið áhyggjuefni að hérna sé ekki að leysast úr stjórnarkreppunni sem virðist ríkja á Alþingi. Hvar eru allir Alþingismennirnir okkar? Hvernig stendur á því að þeir taka sig ekki saman og mynda sáttmála, allavega fram að kosningum, þannig að klakkinn fari ekki endanlega til helvítis.
Fundað um stjórnarmyndun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.1.2009 | 01:00
Móðir allra mótmæla!!!
Koma svo fólk. Er þetta ekki kjörið tækifæri? Nú eru þúsundir búnir að sitja um Alþingi vegna smákrimma í útlöndum sem settu allt á hausinn. Er fólk búið að gleyma Bretunum??? KOMMON! Þetta er NATO!!! Nú ættu þúsundir að mótmæla við fundarstaði NATO. Ok, það er allavega vitað hvar liðið er. Hvers vegna hefur ekki heyrst píp frá yfirstjórn NATO um að Bretar stinga slíkum lögum á íslenskt fyrirtæki. Bíddu, erum við ekki líka í NATO? Erum við þá orðin óvinaþjóð hinna NATO ríkjanna ef Bretar telja ÓGN steðja af okkur, svo mikla að þeir beita MJÖG umdeildum lögum á íslenskt fyrirtæki???
Eða, eru íslensk mótmæli svona púkó að við sýnum þau ekki virtum NATO'ingum??
Sex voru handteknir | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.1.2009 | 18:39
blablablablabla.....
Bíddu hvað er málið? Þessi stjórn á að sitja í hvað, febrúar, mars og apríl (ef hún er heppin). Hvað er svona erfitt? Afhverju er ekki málalok kominn? Kommon gæs, drífa þetta af!!!
Er þetta ekki frekar einfalt?
1. Fá skuldastöðu ríkissjóðs - til að ákveða næstu aðgerðir.
2. Fá skuldbindingastöðu fjármálafyrirtækja erlendis sem hugsanlega gætu lent á ríkinu eða sem í það minnsta þyrfti að semja um.
(ég allavega fyrir mína parta ætlast til þess að ég fái um það að segja hvað mínir skattpeningar fara í að borga og hversu mikið og FYRIR HVERJA)
3. Setja peninga inní íslenska banka og reka alla millistjórnendur og hærra setta, þar þarf líka að hreinsa til. Þetta myndi þá kannski þýða að banarnir gætu farið að funkera.
4. Aðgerðir fyrir fjölskyldur, t.d. frysta skuldir er snúa að því að fólk geti lifað næstu 12 mánuði þokkalega af.
5. Aðgerðir fyrir fyrirtækin, t.d. að lánalínur til þeirra komist í gang þannig að mörg þeirra þurfi ekki að gefa upp öndina að óþörfu.
6. Hafa áhættulán með litlum tryggingum til að freista þess að menn geti komið sér útúr mestu þrengingunum, á sérkjörum frá ríkinu og með rúmum endurgreiðsluskilmálum. Er það ekki betra en allir fari á hausinn?
7. Fólk sem mun taka við atvinnuleysisbótum geti kosið að fara í nám, en án skilyrða LÍN. Er ekki betra að borga fólki fyrir að mennta sig í stað þess að það sitji heima á rassgatinu og geri ekki neitt en að horfa á imbann í von um að ástandið bætist.
8. Koma þeim til landsins sem bera megin ábyrgð á hruni okkar efnahagskerfis, þar sem þeir verða látnir sæta ábyrgð og sæti rannsókn. Hvort sem það hefur í för með sér að þeir verði fangelsaðir eða opinberlega hýddir fyrir framan Alþingishúsið.
allt annað getur beðið kosninga, ekki satt?
Nær Evrópu með Vinstri grænum | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
28.1.2009 | 18:20
Móðir allra ríkisstjórna (part 1)
Það var mjög fyndið að allur áróður í Baugsmiðlum gengur útá að það sé sjálfgefið að Jóhanna sé næsti forsætisráðherra. Allavega veit ég núna miklu meira um þessa konu heldur en ég kæri mig um að vita. En, liggur það þá ekki ljóst fyrir að Samfylkingin er búin að raka til sín öllum hinsegin atkvæðum líka? Sagt er að Jóhanna verði fyrsti kvennmaðurinn í sögu lýðveldisins að hampa forsætisráðherrastól, tala nú ekki um að það hlýtur að vera pottþétt þar sem hún er samkynhneigð líka - en, hvaða máli skiptir það? Af hverju skiptir það máli hvaða kynhneigð hún hallast til?? Gerir það hana hæfari eða óhæfari? Hvurslags bull. Hún er kona nr. 1, 2 og 3. Hvað hún gamnar sér utan þings skiptir ekki megin máli hér.
Sérstaklega er þessi áróður fyrir henni athyglisverður í ljósi þess að engin ríkisstjórn er við völd hér í dag, heldur núverandi (fráfarandi) starfsstjórn. Athyglisvert að fréttasvið Stöð2 skyldi vera búið að kokka upp öllum hennar ferli og í talpípustólum um að hún sé orðinn forsætisráðherra, og það á innan við sólarhring frá stjórnarslitum.
En dæmandi af listanum sem nefndur er í fréttinni þá lítur út að það sé gott að vera vinur vina sinna.
Býst við stjórn á laugardag | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:25 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2009 | 18:11
Gummi kominn heim.
Jæja, gamli skólafélaginn minn bara sestur í framsóknina eins og forfeðraveldið. Var ekki einhver að tala um að tiltekt hefði átt sér stað í Framsóknarflokknum?? Allavega virðist Gummi vera hættur að vera í fýlu úti pabba gamla og kominn á sinn stað sem honum var ætlað til að endurvekja "gömlu gildin" í framsókn. En, er það ekki einmitt það sem fólk var búið að gefast upp á? Hefur, og mun, framsókn ekki alltaf standa fyrir vinatryggð og sérvinavæðingu?
En, það er gott að hann Finnur fyrir svona miklum meðbyr í gustinum á klakanum.
Hefur svo einhver gefið sér tíma og skoðað hver er pabbi Sigmundar Daviðs?? Nei, hélt ekki. Hvernig væri að kíkja á það og tala svo við mig. Allavega eru ríkisspenarnir fullþandir þar.
Það er allavega gott að vita að það er í hlutverki "Nýju Framsóknar" að hugsa um forfeðrahaginn, eins og ávallt, ekki satt:)
Pabbarnir sjá um sína þegar mest við lætur.
Guðmundur: Stefnir á fyrsta sætið í NV-kjördæmi | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2009 | 16:02
...og svo skammastu þín svo...
Núna er svo komið að þegar ég sé nöfn þessara manna og annarra úti-rásar-auðna-manna, poppar alltaf uppí hausnum á mér sama lagið..... með Ladda: ... þegar ég var smár...... og svo skammastu þín svo....
(jú.... líka þegar ég sé Hann-nes - Jón og Jó-hann-ess)
Milljarðalán skömmu fyrir hrun | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
28.1.2009 | 15:39
Skrattinn loksins búinn að hitta ömmu sína.
Já, maður getur ekki annað en brosað útí eitt, og svo hitt, og svo bæði.
Mikið gasalega ætlar þetta að verða vandræðalegt fyrir Ögmund. Vinstri grænir rétt byrjaðir á að ræða við hugsanlegann samstarfsríkisstjórnakredduflokkinn, og vitleysan strax byrjuð. Maður sem búinn er að helga sig verkalýðsbaráttu undangengin - guð má vita hvað - mörg ár.
Skemmtileg tilviljun að Dabbi kallinn er orðinn "skjólstæðingur" Ögmundar. Þá er spurning, gengur Ögmundur á grundvallar-hugsjónarmið sín með því að ráðast svona með beinni aðgerð að einum starfsmanni í stjórnsýslu, þ.e. ríkisstarfsmanni. Er þetta virkilega orðið svo slæmt að verkalýðsbaráttan fleygir útum gluggan áratuga baráttumálum - til að fá svalað sínum sérhagsmunum? Jah, veit að það eru fleiri en Jón Sigurðsson (forseti) sem eru orðnir ókyrrir í gröfum sínum.
Hefði verið mjög rausnalegt af Ögmundi að upplýsa almenning um að það er mál sem vanda þarf til að losa út ríkisstarfsmann á stjórnunarstigi Davíðs. Þetta hefði verið gott innlegg í umræðuna, og líka með það að Vinstri grænir eins og aðrir flokkar hér á landi sem og stjórnmálamenn, hafa ekki græna glóru hvernig á að takast á við þau vandamál sem fyrir okkur liggja.
Ég ámæli Ögmund, þrátt fyrir að ég hef alltaf borið ómælda virðingu fyrir honum, fyrir að þjóðnýta sér stöðu landsins og leggja af þjóðstjórn til að pota og ota sínum tota. ÖGMUNDUR: Hvar eru 5 milljarðarni sem lífeyrissjóðurinn sem þú stýrðir "týndu"?? Já, hvar? Þá var ekkert hrun eða spreð í gangi. Er búið að finna þessa peninga?
Davíð undir væng Ögmundar | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
28.1.2009 | 14:17
Sigurður greinist með lekanda!
Það er engu líkara en að vel smurður lygavefur sé í vændum og mikill hvítþvottaáróður að ryðjast fram frá Sigurði og félögum, enda blessuðu mennirnir búnir að hafa um 4 mánuði til að kokka sínum bókum saman, eyða gögnum, tryggja baklandið og nóga peninga til að leika sér á jómfrúunum Bresku.
Mér finnst þetta allavega alveg ótrúlegur lekandi af upplýsingum í ljósi þess að Sigurður er búinn að segja að 3-4 mismunandi hlutir hafi fellt bankakerfið, jú, og svo þetta. Er þetta ekki líka alveg dæmalaus tímasetning að þegar í loftinu liggur frumvarp til laga um að kyrrsetja eigur íslenskra auðmanna, þá bara POPPSALAPOPPS, dúkkar upp ástarbréf til ættingja og vina frá Sigurði Einars. Sorry, mér er svo ofboðið að orð í óbrenglaðri mynd komast ekki á þann stað í huga mínum gagnvart þessum aðilum.
Sigurður, bara bein spurning hérna, ertu virkilega svo vitlaus að halda það að fólk sjái ekki í gegnum þetta hjá þér? Er þetta ekki afar hentugur tími til að "leka" slíkum upplýsingum, "einkabréfi", eða hvað þú vilt kalla þetta. Þú veist það vel og ég að bréfið er eingöngu til þess fallið að veita villandi upplýsingar og slá ryki í augu fólks.
Fyrir utan það, ef þú gerðir ekkert af þér, hvers vegna ertu þá ekki hér á klakanum að taka til hendinni og hjálpa til með upplýsingagjöf eða bara þrífa skítinn eins og við hin? Er eitthvað fleira sem þú hefur uppí erminni til okkar "vina og vandamannanna" hér á klakanum sem þú vilt deila með okkur?
Atlaga felldi íslenska kerfið | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.1.2009 | 14:02
Merkilega ómerkilega merkilegur hjónaskilnaður.
Hefur Samfylkingin ekki alltaf verið betri PR en Sjálfstæðismenn? og reyndar allir hinir flokkarnir líka? Þessi PR-vél Ingibjargar er alveg makalaus. Sjálfstæðismenn þyrftu svo virkilega á henni að halda.
Réttast hefði verið að flokkarnir hefðuð stokkað upp í lok síðasta árs eins og til stóð. En...... ;) sagan endurtekur sig ekki satt? Alltaf skulu Sjálfstæðismenn vera skúrkurinn.
Þetta minnir mig á hryllingssögurnar um hjónaskilnaði þegar "kallinn" er alltaf skíthællinn. Nú, það er vitað mál að ríkisstjórnin hóf sig á kossaflensi. Ríkisstjórnin endaði með kossi dauðans, svona eins og í Godfather;) Kysstur og hylltur, en þegar á hólminn er komið er aftakan að hefjast, það sýndi sig svo sannarlega á háttarlagi Ingibjargar að hún var ansi - já bara töluvert illkvittnari í garð Geirs en hann til hennar.
Í þessu sambandi er ..... Samfylkingin þá.... konan?.... ekki satt og Sjálfstæðisflokkurinn.... kallinn.... ekki satt?? Þannig að Sjálfstæðisflokkurinn er vondur og leiðinlegur og allt honum að kenna. Á meðan Samfylkingin er.... kúguð og beitt ofríki... alveg saklaust fórnarlamb aðstæðna.... og gerði ekkert til að leggja til í púkkið um hvernig er fyrir okkur farið.
„Ótrúlega ómerkilegt“ af Samfylkingu | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
Um bloggið
Björgvin Ólafur Óskarsson
Tenglar
Mínir tenglar
- ATV.is Fyrirtæki eða atvinnuhúsnæði við þitt hæfi, þá byrjar leitin hér:)
- Atvinnuhúsnæði Atvinnuhúsnæði | Til Leigu | Til Sölu | Umsjón
- MBL.is Rokka feitast í fréttum og fasteignaauglýsingum.
- VISIR.is Smáauglýsingarnar eru betri:)
- Húsið Fasteignasala Húsið Fasteignasala