13.4.2009 | 14:23
Jahérna...
Þetta er nú alveg kræstómægtí kreddan.... Ég ekki búinn að opna á mér kjaftinn frá því í apríl??? Sýnist nú bara ekkert búið að gerast síðan. Jahérna....
Kostningarnar framundan. Allir ætla að moka flórinn. Allir ætla að bjarga allt og öllum. Hverjum á eiginlega að bjarga?? Hverjum þarf að bjarga?? Þarf að bjarga einhverjum?? Er einhver björgunarverður??
Hvað ætlar hver að gera hvenær og hvernig? Veit þetta einhver?? Er ekki Lóan að koma??
EN VÁÁÁ!!! Mikið rosalega eru páskarnir búnir að vera MÓFÓ flottir. Ég verð bara að segja, þótt að ungur sé (hehehehehehehehehehehe), þá bara man ég bara ekki eftir páskum..... svona í fljótu bragði, þar sem sól, hægviðri, og sumarylur hefur leikið ljósu lokkana (hehehehehehehehehehe) mína alla páskana hér á suð-vesturhorninu, ég meina skírdagur.....föstudagurinn langi var bara óvenju fljótur að líða.... laugardagur -----whatever-----.... páskadagur æði.... annar í páskum helmingi meira æði.... pínu nístí kulda.... en samt bara alveg æðislega rjómsíríussúkkulaðiveðurblíða:)
Svo það æðislegasta.... náði loksins að hrinda frá mér vinnuokinu og slappa af. Held bara að ég hafi gleymt því þarna á smá kafla hvernig maður gerir svoleiðis. En.... það var ekki við súpuna setið.... heldur farið með allan krakkaskarann í hafnarbolta með öllu tilheyrandi:) Þetta var fallegur dagur.l
Um bloggið
Björgvin Ólafur Óskarsson
Tenglar
Mínir tenglar
- ATV.is Fyrirtæki eða atvinnuhúsnæði við þitt hæfi, þá byrjar leitin hér:)
- Atvinnuhúsnæði Atvinnuhúsnæði | Til Leigu | Til Sölu | Umsjón
- MBL.is Rokka feitast í fréttum og fasteignaauglýsingum.
- VISIR.is Smáauglýsingarnar eru betri:)
- Húsið Fasteignasala Húsið Fasteignasala
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.